DORA - stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar - 14. október 2026 - ath breytt tímasetning
Reglugerð ESB um stafrænt rekstrarþol (DORA) tók gildi hér á landi ársbyrjun 2026 og hefur víðtæk áhrif á fjármálafyrirtæki og lykilbirgja þeirra á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni (UFT). Á námskeiðinu verður farið yfir gildissvið reglugerðarinnar, helstu skyldur fjármálafyrirtækja og UFT-þjónustuveitenda, og innleiðingu í íslenskan rétti.
Áhersla verður lögð á áhættustýringu í upplýsinga- og fjarskiptatækni, tilkynningarskyldu vegna atvika, kröfur um álagspróf og stjórnun þriðju aðila áhættu, auk annarra hagnýtra álitaefna sem upp hafa komið í framkvæmd.
Námskeiðið hentar lögmönnum sem starfa fyrir aðila á fjármálamarkaði svo sem fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóði, og/eða þjónustuveitendur slíkra félaga.